flipp myndeyrún hrefna

Ein svona flipp mynd í tilefni dagsins. 

Lesa undir próf? Neeeeeeyrún hrefna

Ef það eitthvað sem mér finnst leiðinlegt í dag er það það að ég er að vinna.  Maður vinnur ekki í upplýsingamiðstöð á 1. maí.   Það góða við þennan dag er að ég fæ örugglega helmingi meira borgað en venjulega í yfirvinnu. Svo fæ ég líka að læra smá - er nú samt ekki búin að gera mikið af því.  En mikið var nú gott að koma heim í gær og fá smá knús :)

Ef einhver á fallegan kjól sem vill lána mér fyrir myndatöku hjá Aldísi er vinsamlegast beðinn um að hafa samband...
Já, og líka ef einhver á pening, af því að ég gleymdi veskinu mínu í Rvk, má sá hinn sami endilega borga bensín á bílinn minn :) Reyndar er ökuskírteinið mitt líka í veskinu þannig að ég má eiginlega ekkert vera að keyra. En sá sem býðst til að borga bensínið má þá líka borga sektina ;)

Hverjum öðrum finnst íþróttapróf heimskuleg?  Auðveldasta próf í heimi en samt ekki séns að maður nenni að læra undir þetta. 

Ef ég á ekki bara eftir að farast úr spenningi í sumar út af Danmerkurdvöl í haust þá veit ég ekki hvað.  Ég er komin að því að pissa á mig núna sko.  En óó, hvað ég á eftir að sakna Íslands og allra þar.

Er samt komin með algjört æði fyrir Hauki Morthens og þá sérstaklega lögunum "Til eru fræ" og "Þrek og tár". Íslenskar perlur dægurlaga.

En nú hef ég EKKERT meira að segja, mjög leiðinlegt blogg en gott að því leiti að ég hef ástæðu? til að lesa ekki undir prófið :)

Reykjavíkeyrún hrefna

Ég hef litlu áorkað í Reykjavík síðan á fimmtudaginn, enda guðsvolaður staður.

Ég sé mér allavega ekki fært að fara á CocoRosie tónleika 17. maí.  Ekki nema mér hlotnist þann heiður að vinna í lottói eða happaþrennu (allt getur gerst) - óþolandi, og já ég var að heyra að Belle & Sebastian ætli ekki að koma á stórhátíðina á Borgarfirði í júlí.  En vonandi er verið að redda einhverjum öðrum.  Hvað með Will Oldham, CocoRosie, Say hi to your mom eða bara Snoop dog? How does it sound?  Ég er heví mikið til.


Splash TV?
Einhver að fíla þetta? 0  Kreisí leiðinlegir gaurar. Þegiði.

Annars hlakka ég meira til en nokkur annar (allavega sumir) að fara heim í fjörðinn kæra og fagra.  Þar bíður mín nýmálað herbergi, ný húsgögn og að sjálfsögðu Aldís mín fagra.  Svo er ég búin að vera dugleg hér að sjá fullt af fínu dóti sem mig langar til að hafa í herberginu mínu 0  Hlakka líka heví til bara að fara heim frá Reykjavík og komast heim í Lagarfellin tvö.0 Kem nú heim á morgun og beint í helvítis vinnuna. 

Er þó eigi búin að sitja aðgerðarlaus hér heldur bjargaði ég mér og Elsu systur frá bílsslysi þegar það munaði meter að hún hefði neglt á strætisvagn eftir að vera ekki alveg að fylgjast með - laga útvarpið eða leita að kveikjara.  Svo er ég búin að skemmta pabba (sem er nýýýkominn frá Frakklandi) og sjálfri mér í allt kvöld með því að tala skandinavísku.   Maður verður nú að æfa sig áður en maður fer út 0 


Annars er orðið dimmt úti og ég látin sofa ein fram í sófa.  Frekar fúlt - langar í félagsskap.  0

ný síðaeyrún hrefna

Jei, mér finnst þessi síða skemmtileg :)

Prófíll

  • Nafn: eyrún hrefna
  • Netfang: eyrunhrefna@visir.is
  • Staður: Fellabær city
  • Heimilisfang: Lagarfell 20
  • Kyn: kvk
  • Hjúskaparstaða: Laus en ekki mjög liðug.
  • Um mig: Ýmislegt kemur til greina. Hress, sprelllifandi, lífsglöð, rappari, kúl, lífsspekúlant, mangóaðdáandi og síðast en ekki síst áhrifavaldur írsku óperunnar.
  • Annað: Ég get bara gert úthverfa fasta fléttu á mér, en bara innhverfa á öðrum. :/

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...